Inga Lind Karlsdóttir, fjölmiðlakona og eigandi framleiðslufyrirtækisins Skot Production, greiddi 380.000.000 krónur fyrir glæsiíbúð á Heklureitnum sem er við Laugaveg 168.
Um er að ræða 236 fm íbúð á efstu hæð nýmóðins og smart húsi sem er í byggingu. Íbúðin verður afhent í september 2025.
Hátt er til lofts í íbúðinni eða 3,4 m og er sérstakur hljóðdúkur í alrýminu. Hafstudio og Studio Homestead koma að hönnun innréttinga og eru þær sérsmíðaðar af ítalska fyrirtækinu Cubo Design úr Miton-línunni þeirra. Kaupendur hafa tækifæri til að velja mismunandi liti og áferðir fyrir innréttingar sem og flísar á baðherbergi, komi þeir tímanlega að borði.