Blár gullmoli til sölu á Siglufirði

Blár er ríkjandi.
Blár er ríkjandi. Samsett mynd

Við Hlíðarveg á Siglufirði er að finna bárujárnsklætt einbýlishús á þremur hæðum með fallegu útsýni yfir sjávarþorpið. Húsið er 111,1 fm að stærð og skiptist í hæð, kjallara og ris. Það var reist árið 1931 og er því 93 ára gamalt.  

Ásett verð er 31.900.000 krónur.

Fram kemur í fasteignaauglýsingunni að búið sé að gera húsið upp, bæði að innan og utan, en síðastliðin 20 ár hefur húsið verið í eigu húsasmíðameistara sem hefur sinnt viðhaldi og endurgerð.

Mikið er um bláa litatóna og er eldhúsinnréttingin dimmblá, líkt og baðherbergið, tröppurnar og útidyrahurðin, sem grípur augað við fyrstu sýn.

Húsið býr yfir langri sögu, gamaldags sjarma og góðum anda sem nýr húseigandi mun fá að njóta um ókomin ár. 

Af fasteignavef mbl.is: Hlíðarvegur 16 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda