Við Hulduland í Fossvogi er að finna einstakt raðhús sem státar af góðu skipulagi og heillandi innréttingum. Húsið var reist 1968 og er 204 fm að stærð.
Húsið hefur verið endurnýjað mikið.
Í eldhúsinu, sem snýr í norður, er að finna hvítar sprautulakkaðar innréttingar í bland við eikar. Stór skápaveggur prýðir eldhúsið en svo eru neðri skápar í L sem framkallar ríkulegt borðpláss. Myndarlegt gashelluborð er í eldhúsinu og snýr eikin í innréttingunum lárétt sem er alltaf sérlega fallegt.
Húsið er á pöllum en á efsta pallinum er stór stofa með ennþá stærri gluggum sem hleypa suðursól inn í húsið.
Heimilið er búið eigulegum húsgögnum sem parast vel saman.