Ríkissjóður Íslands selur einbýlishús á besta stað í 101

Húsið er við Bárugötu 3 í Reykjavík.
Húsið er við Bárugötu 3 í Reykjavík.

Ríkissjóður Íslands hefur sett einbýlishús sitt við Bárugötu 3 á sölu. Um er að ræða 185 fm einbýli sem reist var 1934. Húsið hefur ekki verið notað sem einbýlishús heldur sem skrifstofu- og rannsóknarhúsnæði. 

Gullregn og eignarlóð 

Húsið stendur á eignarlóð. Austan megin við húsið er bílstæði sem hægt er að nýta sem stæði fyrir tvo bíla. Í kringum húsið er gróinn garður sem státar af æðisgengnu gullregni en í fasteignaauglýsingu á mbl.is kemur fram að um fallegasta gullregn á Íslandi sé að ræða. 

Einbýlishúsin á þessum stað í 101 eru eftirsótt og eru oftar en ekki seld á yfirverði. Ásett verð 159.500.000 kr. 

Húsið hefur verið notað undir skrifstofur.
Húsið hefur verið notað undir skrifstofur.

Sjá nánar á fasteignavef mbl.is: Bárugata 3

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda