Jódís Skúla selur raðhús með auka íbúð

Jódís Skúladóttir, fyrrverandi þingmaður, hefur sett raðhús sitt í Reykjavík …
Jódís Skúladóttir, fyrrverandi þingmaður, hefur sett raðhús sitt í Reykjavík á sölu. Samsett mynd

Jó­dís Skúla­dótt­ir, þingmaður Vinstri grænna í Norðaust­ur­kjör­dæmi, ákvað að hætta á Alþingi á dög­un­um þegar hún upp­lifði að sér hefði verið hafnað af flokkn­um. Stuttu síðar var raðhús henn­ar í Reykja­vík aug­lýst til sölu.

Um er að ræða 163 fm raðhús sem reist var 1955. Í kjall­ara húss­ins er auka­í­búð sem auðvelt er að leigja út. 

Húsið er fjöl­skyldu­vænt, með garði og nokkuð snyrti­leg­um inn­rétt­ing­um. Það er staðsett miðsvæðis í Reykja­vík, stutt er út á stofn­braut­ir og í Skeif­una. 

Keypti 27 millj­óna íbúð í heima­byggð 

Jó­dís festi kaup á hús­inu í októ­ber 2022 en hún á líka aðra fast­eign í Múlaþingi sem hún fjár­festi í 18. des­em­ber í fyrra. Um er að ræða 78,8 fm íbúð á fyrstu hæð við Sunnu­fell 5. Blokk­in var reist 1973 og er Jó­dís með lög­heim­ili þar. Fyr­ir íbúðina greiddi hún 27.000.000 kr. 

Ásett verð á raðhús­inu við Skeiðar­vog er 111.900.000 kr. og er fast­eigna­mat 97.000.000 kr. 

Sjá nán­ar á fast­eigna­vef mbl.is: Skeiðar­vog­ur 137

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda