Erla Gerður Sveinsdóttir, læknir og sérfræðingur í offitumeðferðum, og Geir Borg hafa selt einbýlishús sitt við Sunnuflöt 23. Húsið er 256 fm að stærð og var reist 1968. Það var auglýst til sölu í vor.
Hjónin festu kaup á húsinu árið 2000 en það stendur á skjólgóðum stað fyrir ofan götu. Búið er að nostra við húsið. Fyrir tveimur árum var það klætt að utan með zink-klæðningu og þak yfirfarið. Stórir gluggar prýða húsið sem hleypa mikilli birtu inn.
Árið 2007 skiptu hjónin um innréttingu í eldhúsinu og fengu sér hvíta sprautulakkaða með gripum og dökkum borðplötum
Kaupendur hússins eru Laufey Halldóra Eyþórsdóttir og Þorsteinn Magnússon. Þau greiddu 220.000.000 kr. fyrir húsið.
Smartland óskar þeim til hamingju!