Fengu innblástur frá Kim Kardashian

Embla Hallfríðardóttir og Lára Rut Sigurðardóttir festu kaup á draumaeigninni …
Embla Hallfríðardóttir og Lára Rut Sigurðardóttir festu kaup á draumaeigninni árið 2022. mbl.is/Irja Gröndal

Árið 2022 festu þær Embla Hallfríðardóttir og Lára Rut Sigurðardóttir kaup á draumaeigninni í Reykjavík. Á síðustu tveimur árum hafa þær tekið eignina í gegn frá a til ö, en útkoman er sérlega glæsileg enda eru þær miklir fagurkerar og smekkkonur.

Embla er viðskiptafræðingur að mennt og starfar hjá Arion banka og Lára vinnur sem rafvirki hjá Rafholt. Þær kynntust í gegnum sameiginlegar vinkonur árið 2016 og kolféllu hvor fyrir annarri.

„Við byrjuðum fljótlega saman eftir það og trúlofuðum okkur árið 2017. Við eignuðumst svo stelpuna okkar árið 2021 og giftum okkur árið 2022 ásamt því að kaupa þessa draumaeign. Við getum sagt að hlutirnir eru ekki lengi að gerast hjá okkur,“ segja þær.

Embla og Lára hafa verið saman frá árinu 2016.
Embla og Lára hafa verið saman frá árinu 2016. mbl.is/Irja Gröndal

Húsið var reist árið 1950 og ber þess skýr merki þar sem byggingarstíllinn er í anda þess tíma, en Embla og Lára urðu strax heillaðar af arkitektúr hússins og sáu mikla möguleika í eigninni. 

„Við ákváðum að fara og skoða þessa eign þar sem staðsetningin heillaði okkur mikið ásamt stórum garði við húsið. Okkur fannst húsið sjálft líka ótrúlega fallegt – stærðin á gluggunum og fallegu handriðin á svölunum sem maður sér því miður ekki lengur í nýbyggingum heilluðu okkur algjörlega. Þegar við fórum síðan að skoða eignina að innan sáum við mikla möguleika,“ segja þær. 

Gluggarnir og handriðin á svölunum heilluðu Emblu og Láru strax.
Gluggarnir og handriðin á svölunum heilluðu Emblu og Láru strax. mbl.is/Irja Gröndal
Þær sáu strax mikla möguleika í eigninni.
Þær sáu strax mikla möguleika í eigninni. mbl.is/Irja Gröndal

„Þetta hefur verið ótrúlegur lærdómur“

Eftir að Embla og Lára festu kaup á eigninni hófust miklar framkvæmdir þar sem öllu var skipt út sem hægt var að skipta út um leið. Um leið lögðu þær áherslu á að leyfa upprunalegum sjarma hússins að njóta sín, en mikil lofthæð er í eigninni ásamt fallegum og stórum gluggum sem setja punktinn yfir i-ið.  

„Framkvæmdirnar hófust strax þegar við fengum húsið afhent og við erum enn þá að. Við skiptum út öllu sem hægt var að skipta út og breyttum öllu skipulagi innanhúss, svo það má segja að þar sé allt glænýtt. Meirihlutinn er búinn en það er nóg eftir. Við erum loksins byrjaðar á garðinum og nú var verið að rífa allt úr honum, en hann var eins og skógur!,“ segja þær. 

Embla og Lára réðust strax í miklar framkvæmdir.
Embla og Lára réðust strax í miklar framkvæmdir. mbl.is/Irja Gröndal
Embla og Lára eru miklir fagurkerar.
Embla og Lára eru miklir fagurkerar. mbl.is/Irja Gröndal

„Þetta hefur verið ótrúlegur lærdómur, mjög gaman en á sama tíma mjög erfitt. Þetta hefur óneitanlega tekið á sambandið og fjölskyldulífið en við getum sagt með fullri vissu að þetta verði allt þess virði,“ bæta þær við.

Embla og Lára hafa haldið út skemmtilegum Instagram-reikningi, Framkvæmdaóðar, þar sem þær hafa gefið fylgjendum innsýn í framkvæmdirnar síðustu ár. Þær eru engir byrjendur þegar kemur að því að breyta og bæta heimili. „Við fórum í miklar framkvæmdir á síðustu eign sem við áttum sem var góður undirbúningur fyrir þetta verkefni. Það var þó einungis dropi í hafið miðað við þessar framkvæmdir,“ útskýra þær. 

Embla og Lára hafa verið duglegar að gefa innsýn í …
Embla og Lára hafa verið duglegar að gefa innsýn í ferlið á Instagram undir notendanafninu Framkvæmdaóðar. mbl.is/Irja Gröndal
Falleg litapalletta flæðir í gegnum íbúðina.
Falleg litapalletta flæðir í gegnum íbúðina. mbl.is/Irja Gröndal

Sóttu innblástur á heimili Kim Kardashian

Aðspurðar lýsa Embla og Lára heimilisstílnum sem afar minimalískum, en þær sóttu mestan innblástur á heimili raunveruleikastjörnunnar Kim Kardashian og á samfélagsmiðlinum Pinterest. 

Gengið er inn í opið og bjart alrými hússins þar sem eldhús, stofa og borðstofa eru samliggjandi. Ljósir tónar og fallegur efniviður er í forgrunni í eigninni, en Embla og Lára viðurkenna að þær séu ekki mjög litaglaðar, hvorki þegar kemur að húsgögnum, innréttingum né klæðaburði. 

„Parketið er klárlega í aðalhlutverki og við völdum eldhúsinnréttingu í „beige“ lit svo að parketið fengi að njóta sín til fulls,“ segja þær. Gólfefnið er chevron gegnheil „rustic“ eik frá Gólfefnavali sem skapar afar hlýlega stemningu í eigninni, en þær lögðu sérstaka áherslu á að skapa þar kósí stemningu. 

Embla og Lára viðurkenna að þær séu ekki mjög litaglaðar …
Embla og Lára viðurkenna að þær séu ekki mjög litaglaðar sem endurspeglast í heimili þeirra. mbl.is/Irja Gröndal
Falleg eik prýðir gólfin og gefur eigninni mikla hlýju.
Falleg eik prýðir gólfin og gefur eigninni mikla hlýju. mbl.is/Irja Gröndal

„Við erum með fá en vel valin húsgögn sem fá að njóta sín til fulls. Við vildum að allir hlutir ættu sinn stað á heimilinu, en okkur finnst það skapa ró og því viljum við hafa sem minnst „kaos“,“ segja þær. 

Eldhúsið er rúmgott með góðu skápa- og vinnuplássi. Háir skápar falla inn í vegginn sem gerir rýmið sérlega stílhreint, en það er án efa stóra eldhúseyjan í miðjunni sem grípur augað. Á eyjunni er undurfagur Taj mahal-steinn frá Granítsteinum sem gefur rýminu bæði karakter og hlýju. Við eldhúsið er svo notaleg borðstofa þar sem hlýlegir viðartónar eru í aðalhlutverki. Yfir borðstofuborðinu hangir sjarmerandi ljós frá Magnoliu sem gefur af sér hlýlega birtu. 

Eldhúsið er rúmgott, stílhreint og bjart.
Eldhúsið er rúmgott, stílhreint og bjart. mbl.is/Irja Gröndal
Taj mahal-steinn á eldhúseyjunni setur svip sinn á rýmið.
Taj mahal-steinn á eldhúseyjunni setur svip sinn á rýmið. mbl.is/Irja Gröndal

Embla og Lára segja uppáhaldsrýmið á heimilinu klárlega vera baðherbergið enda hafa þær skapað stemningu þar sem minnir helst á fimm stjörnu heilsulind. Sami Taj mahal-steinn og á eldhúseyjunni prýðir baðherbergisinnréttinguna og hafa tveir vaskar verið útbúnir úr steininum sem skapa lúxusyfirbragð í rýminu. 

Á veggjunum völdu þær að nota svokallað microsement frá Sérefni með fallegri kalkáferð, en rýmið er rúmgott og bjart með baðkari og stórum sturtuklefa með tveimur sturtum. 

Baðherbergið er í sérstöku uppáhaldi hjá Emblu og Láru.
Baðherbergið er í sérstöku uppáhaldi hjá Emblu og Láru. mbl.is/Irja Gröndal
Á veggjunum er falleg áferð.
Á veggjunum er falleg áferð. mbl.is/Irja Gröndal

Myndu tvöfalda kostnaðaráætlunina í dag

Spurðar út í uppáhaldshúsgagn segjast Embla og Lára eiga í miklum erfiðleikum með að velja á milli sófans og borðstofuborðsins. „Bæði var keypt í Tekk eins og flest annað heima hjá okkur,“ segja þær. 

Sófinn fellur sérlega vel inn í stofurýmið, en þar má einnig sjá tvo formfagra hægindastóla og sófaborð. Falleg innbyggð vegghilla setur svip sinn á rýmið ásamt ljósi frá Magnoliu, en einnig sjarmerandi tvöfaldri hurð út á svalir.

Sófinn er í miklu uppáhaldi, en hann er úr Tekk.
Sófinn er í miklu uppáhaldi, en hann er úr Tekk. mbl.is/Irja Gröndal
Vegghillan setur punktinn yfir i-ið í rýminu.
Vegghillan setur punktinn yfir i-ið í rýminu. mbl.is/Irja Gröndal

Spurðar hvort það sé eitthvað sem þær myndu gera öðruvísi núna ef þær væru að byrja í framkvæmdunum þá nefna þær báðar að þær myndu tvöfalda kostnaðaráætlunina. 

Það er nóg fram undan hjá fjölskyldunni sem hefur komið sér afar vel fyrir í fallega húsinu. „Þó að það sé mikið búið erum við enn þá að vinna í lóðinni og garðinum. Við eigum eftir að klára að gera húsið fallegt að utan ásamt því að klára hjónasvítuna okkar. Síðan þurfum við að velja útihurðir sem passa við útlit hússins og hverfisins – það klárast vonandi einn daginn!“ segja þær. 

Í herbergi dóttur Emblu og Láru er fallegt veggfóður úr …
Í herbergi dóttur Emblu og Láru er fallegt veggfóður úr Sérefni. mbl.is/Irja Gröndal
Borðstofuborðið er einnig í miklu uppáhaldi hjá Emblu og Láru, …
Borðstofuborðið er einnig í miklu uppáhaldi hjá Emblu og Láru, en það fæst einnig í Tekk. mbl.is/Irja Gröndal
Það er notaleg stemning i hjónaherberginu sem er bjart og …
Það er notaleg stemning i hjónaherberginu sem er bjart og hlýlegt. mbl.is/Irja Gröndal
Frágangurinn er afar fallegur í eigninni, en hér sést hvernig …
Frágangurinn er afar fallegur í eigninni, en hér sést hvernig þær útfærðu hurðarnar inn í herbergin. mbl.is/Irja Gröndal
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda