Fegurðin allsráðandi í 147 fm íbúð við Bólstaðarhlíð

Húsgögnum er raðað upp fallega í stofunni eins og sjá …
Húsgögnum er raðað upp fallega í stofunni eins og sjá má. Ljósmynd/Sölumyndir.is

Við Bólstaðarhlíð í Reykjavík er að finna 147 fm hæð sem er í húsi sem reist var 1951. Íbúðin hefur að geyma fallega franska glugga sem hleypa birtunni inn í stofuna. 

Stofa og borðstofa eru í samliggjandi rými og eru glerjaðar hurðar úr stofu fram á gang. Þær ríma vel við frönsku gluggana sem prýða stofugluggann. 

Stofan er með frönskum gluggum að hluta til.
Stofan er með frönskum gluggum að hluta til. Ljósmynd/Sölumyndir.is
Nýlega innrétting frá IKEA er í eldhúsinu.
Nýlega innrétting frá IKEA er í eldhúsinu. Ljósmynd/Sölumyndir.is

Hlýlegt eldhús

Eldhúsið er opið að hluta til fram á ganginn. Þar er hvít sprautulökkuð innrétting úr IKEA sem er með fulningahurðum og efri skápum úr með glerhurðum. Gott vinnupláss er í eldhúsinu en innréttingin er U-laga og því er pláss fyrir allt það helsta þótt eldhúsið sé ekki flennistórt þannig lagað séð. Í eldhúsinu eru láréttar flísar á milli skápa og hvítur keramík-vaskur. 

Horft inn í eldhús.
Horft inn í eldhús. Ljósmynd/Sölumyndir.is

Heimilislegt heimili

Heimilið í heild sinni er heimilislegt eins og sagt er. Þar er hægt að hafa það notalegt í bláum sófa með tungu og borða girnilegan mat með lýsingu frá PH-ljósi Louis Poulsen. Bókahillur, plöntur og listmunir setja punktinn yfir i-ið og er heildarmyndin falleg. 

Sjá nánar á fasteignavef mbl.is: Bólstaðarhlíð 4

Borðstofan er opin og björt.
Borðstofan er opin og björt. Ljósmynd/Sölumyndir.is
Allir veggir eru hvítmálaðir.
Allir veggir eru hvítmálaðir. Ljósmynd/Sölumyndir.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda