Einar Hugi keypti 430 milljóna einbýli

Einar Hugi Bjarnason og Margrét Ása Þorsteinsdóttir hafa fest kaup …
Einar Hugi Bjarnason og Margrét Ása Þorsteinsdóttir hafa fest kaup á einbýlishúsi við Votakur 1. Samsett mynd

Anna María Sigurðardóttir jógakennari og Gestur Breiðfjörð athafnamaður settu einbýlishús sitt við Votakur 1 á sölu fyrr í sumar eftir að leiðir þeirra skildi. Um er að ræða sérlegt glæsihús sem telur 498,9 fm og var húsið reist 2014. Húsið er með bíósal, líkamsræktarherbergi, vínherbergi, sauna-húsi, útisturtu og öllum helstu þægindum sem hinn athafnasami nútímamaður sækist eftir. 

Nú hefur húsið verið selt. 

Lögmaður á uppleið 

Kaupendur eru Einar Hugi Bjarnason lögmaður á Lögfræðistofu Reykjavíkur sem var töluvert í fréttum á árinu þegar hann tók að sér það verkefni að vera skiptastjóri Wok On. Hann keypti húsið ásamt eiginkonu sinni, Margréti Ásu Þorsteinsdóttur, sem starfar hjá Húðinni Skin Clinic. 

Einar Hugi og Margrét eru með einbýlishús sitt við Rjúpnahæð …
Einar Hugi og Margrét eru með einbýlishús sitt við Rjúpnahæð á sölu. Samsett mynd

Selja einbýli við Rjúpnahæð! 

Hjónin settu fallegt einbýlishús sitt við Rjúpnahæð 15 á sölu í sumar. Það er 259 fm og var reist 2013. Arki­tekt húss­ins er Krist­inn Ragn­ars­son. Húsið stend­ur innst í götu og er með mynd­ar­legu bíla­plani fyr­ir utan. 

Húsið er á tveim­ur hæðum og er gott út­sýni af efri hæðinni yfir Garðabæ­inn. Eld­hús og stofa eru í sam­eig­in­legu rými og eru sér­smíðaðar inn­rétt­ing­ar í eld­hús­inu. Þær eru frá GKS og er ljós steinn á borðplöt­um. Það sem ger­ir eld­húsið enn þá skemmti­legra er að það er stór renni­h­urð út á sval­ir og því er hægt að stækka eld­húsið um­tals­vert á góðviðris­dög­um. 

Greiddi 278 milljónir fyrir Blikanesið

Gestur Breiðfjörð Gestsson hefur fest kaup á Blikanesi 24.
Gestur Breiðfjörð Gestsson hefur fest kaup á Blikanesi 24. Samsett mynd

Gestur hefur nú þegar fest kaup á öðru húsi en Smartland greindi frá því á dögunum að hann hefði keypt einbýlishús við Blikanes 24. Hann greiddi 278.000.000 kr. fyrir húsið sem reist var 1968 og er 398 fm að stærð. 

Það er því ekki hægt að segja að það sé ekki neitt að gerast á fasteignamarkaði! 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda