Ómar Özcan keypti á dögunum einstaklega fallegt hús við Birkihæð 14 í Garðabæ. Hann keypti húsið af Írisi Ósk Valþórsdóttur, rekstarstjóra Vaxa. Hann er verðbréfamiðlari hjá Íslandsbanka og hefur starfað hjá bankanum síðan 2017.
Húsið sem Ómar festi kaup á var reist 1991 en búið var að endurhanna það allt. Það er 205 fm að stærð og greiddi hann 230.000.000 kr. fyrir húsið. Hann setti íbúð sína við Hallakur 3 upp í húsið og fékk fyrir hana 85.000.000 kr.
Húsið við Birkihæð 14 var teiknað af Baldri Svavarssyni arkitekt en Viktoría Hrund Kjartansdóttir innanhússhönnuður hannaði breytingar innanhúss. Búið er að skipta um lýsingu í húsinu og endurnýja innréttingar svo eitthvað sé upptalið. Gólfhiti var settur í húsið og skipt um gólfefni að hluta til.
Smartland óskar Ómari til hamingju með húsið!