Við Holtsbúð í Garðabæ er að finna heillandi raðhús á tveimur hæðum. Húsið var reist 1977 og er 164 fm að stærð. Búið er að endurnýja húsið mikið eins og sést á ljósmyndunum.
Á neðri hæðinni er bílskúr og herbergi en á efri hæðinni flæða eldhús og stofa saman í eitt ásamt sjónvarpsherbergi.
Í eldhúsinu er að finna nýlega innréttingu sem er aðallega með neðri skápum. Djásn eldhússins er ofurfín Smeg-gaseldavél með bakaraofni. Eldhúsið er stílhreint en á sama tíma hlýlegt. Búið er að skipta um gólfefni á hæðinni og er heimilið kryddað með fallegum listaverkum og húsgögnum.