Jörundur Ragnarsson leikari hefur sett íbúð sína við Brávallagötu í miðbæ Reykjavíkur á sölu. Íbúðin er þriggja herbergja risíbúð í þríbýlishúsi. Jörundur festi kaup á íbúðinni árið 2007.
Íbúðin er 86 fm en gólfflöturinn er meiri þar sem svefnhebergin, baðherbergið og eldhúsið eru að hluta til undir súð.
Jörundur fann ástina í örmum Magdalenu Björnsdóttur í heimsfaraldrinum árið 2021. Þau eignuðust son í maí í fyrra.
Íbúðin er sjarmerandi og skiptist í forstofu, borðstofu, stofu, tvö svefnherbergi eldhús og baðherbergi. Fallegt viðarparket er á öllum gólfflötum nema á baðherberginu þar sem gólfið er flotað og lakkað.
Það kemur fram í fasteignaauglýsingunni að íbúðin hafi fengið gott viðhald síðustu ár. Tekið er fram að hverfið sé einstaklega barnvænt og gatan róleg einstefnugata.