Við Leiðhamra í Grafarvogi er að finna einstaka útsýniseign sem er á hæglátum og grónum stað í Hamrahverfinu í Grafarvogi. Einbýlishúsið var byggt árið 1992, er á einni hæð og telur alls 222,1 fm, þar af er tvöfaldur bílskúr sem er 46,5 fm.
Núverandi eigendur lögðust í umfangsmiklar breytingar og fengu með sér í lið Theresu Himmer og Krads arkitekta. Eldhúsið er hannað með nýtinguna í forgrunni og er vel staðsett í alrýminu.
Alrýmið er afar bjart og fallegt og státar af þakglugga sem gefur rýminu enn skemmtilegri blæ. Hátt er til lofts og eikarparket á gólfum í alrými og svefnherbergjum.
Úr alrýminu er stórbrotið útsýni út á Snæfellsnesið þar sem Snæfellsjökullinn trónir yst á nesinu, út á Viðey, Esjuna og Úlfarsfell. Alrýmið skiptist í eldhús, borðstofu, bókastofu og skrifstofurými og býður upp á sérstakan möguleika á uppröðun innanstokksmuna þar sem sköpunargleði getur leikið lausum hala. Bókaskápar og hillur eru innfelldar í veggi í stofunni sem gefur henni sérstaklega skemmtilega samblöndu notagildis og fagurfræði.
Í húsinu eru einnig þrjú svefnherbergi, rúmgott þvottahús og geymslurými og tvö baðherbergi. Útgengt er út á sólpall til vesturs úr hjónaherbergi, alrými og baðherbergi. Úr alrými er einnig útgengt á rúmgóðar svalir sem snúa norður.
Eignin er í einu af elstu hverfunum í Grafarvogi og stutt er í alla helstu þjónustu, eins og skóla og leikskóla. Í nágrenninu eru frábærar göngu- og hjólaleiðir niður með sjó og inn í hverfið. Stutt er í skemmtilegt leiksvæði í Gufunesi, íþróttahús Fjölnis og Grafarvogslaug.