Ofnbakaður hafragrautur

Ofnbakaður hafragrautur.
Ofnbakaður hafragrautur. Ljósmynd/Berglind Guðmundsdóttir

Berglind Guðmundsdóttir matarbloggari á Gulur, rauður, grænn og salt gerir hafragraut að desert með því að ofnbaka hann og setja saman við hann fersk jarðarber.

Ofnbakaður hafragrautur með ferskum jarðarberjum

180 g haframjöl
2 msk púðursykur (má sleppa)
1 tsk lyftiduft
1 tsk kanill
1/2 tsk salt
100 g valhnetur, saxaðar
1 lítil askja jarðarber (eða önnur ber að eigin vali)
480 ml mjólk
1 egg
3 msk brætt smjör
1 tsk vanilludropar
1 þroskaður banani, skorinn í sneiðar

Aðferð:

  1. Blandið haframjöli, sykri, lyftidufti, salti, helmingnum af valhnetunum og helmingnum af berjunum saman í skál.
  2. Í aðra skál skuluð þið láta mjólk, egg, smjör og vanilludropa og hræra vel saman.
  3. Smyrjið ofnfast mót og látið haframjölsblönduna í botninn. Stráið síðan afganginum af hnetunum og berjum yfir haframjölsblönduna og raðið síðan bananasneiðum yfir allt.
  4. Hellið mjólkurblöndunni yfir allt saman og hristið formið örlítið þannig að þetta blandist vel saman. Fyrir þá sem vilja smáaukasætu er gott að strá smápúðursykri yfir allt saman í lokin.
  5. Bakið í 170°c heitum ofni í 30-40 mínútur.
Svona lítur hafragrauturinn út áður en hann fer inn í …
Svona lítur hafragrauturinn út áður en hann fer inn í ofn. Ljósmynd/Berglind Guðmundsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert