Botn
100 g suðusúkkulaði
80 g smjör
3 msk sýróp
150 g rjómakúlur
200 g Rice Krispies
- Bræðið smjör, súkkulaði, sýróp í potti við vægan hita þar til allt hefur blandast saman og bráðnað.
- Bætið því næst Rice Krispies saman við og blandið vel saman. Setjið í form og kælið í um klukkustund.
Fylling
250 ml rjómi
1 poki karamellu Nóa Kropp
- Setjið Nóa kroppið í poka og berjið í hann þannig að það myljist gróflega. Bætið saman við þeyttan rjómann.
Marengs
100 g sykur
100 g púðursykur
3 eggjahvítur
1 Risa Hraun, saxað smátt
- Hrærið sykri, púðursykri og eggjum saman í dágóðan tíma (5-10 mínútur) þar til marengsinn er orðinn stífþeyttur.
- Blandið grófsöxuðu Hrauni saman við með sleif. Setjið marengs á smjörpappír og bakið í 150°c heitum ofni í um 30-40 mínútur.
Súkkulaðikaramellusósa
1 poki Dumble karamellur, með dökku súkkulaði
2-3 msk rjómi
- Setjið karamellur og rjóma saman í pott og bræðið saman við vægan hita. Setjið kökuna saman með því að láta fyrst Rice Krispies botninn, því næst rjómafyllinguna, svo marengs. Setjið því næst ávexti að eigin vali yfir marengsinn ásamt súkkulaðikaramellusósu.