Frábærar æfingar með miniband teygju sem ég hvet ykkur til þess að prófa heima. Þær styrkja rass- og lærvöðva og einnig er hægt að gera þær án teygju ef þið eigið ekki slíka. Hver æfing er gerð í 45 sekúndur, engin pása fyrr en allar æfingarnar eru búnar, þá er gott að hvíla vel og taka 1-2 umferðir í viðbót!
Ég hvet ykkur til þess að hreyfa ykkur á hverjum degi í þessu samkomubanni og ég vona að myndböndin mín gefi ykkur nýjar hugmyndir sem þið getið nýtt ykkur.
Gangi ykkur vel!