c

Pistlar:

18. október 2024 kl. 14:43

Hildur Jakobína Gísladóttir (hildurjakobina.blog.is)

Afsökunarbeiðnin sem aldrei kom

Við höfum öll á einhverjum tímapunkti upplifað einhver hefði átt biðja okkur afsökunar á hegðun sinni en aldrei gert svo. Við sitjum þá með óunnið sár sem heldur áfram vera opið. Oftast veit viðkomandi hann hafi sært okkur með orðum eða hegðun en stundum veit viðkomandi ekki hann hafi sært okkur. Þarna kemur inn list opna á þetta við viðkomandi. hann hafi sært þig og þér finnist það leitt og hvort hann hafi áttað sig á því hafa gert það. Öðruvísi veit viðkomandi ekki hann hafi sært þig og skilur ekki í því af hverju þú forðast hann eða sért fámáll í samskiptum við hann. Ef honum bregður hins vegar og segist ekki hafa áttað sig á afleiðingum sinna gjörða, þá grær sárið um heilt og málið er dautt.  

Hins vegar er það flóknara þegar fólk særir þig vísvitandi. Þá verður sárið opið því afsökunarbeiðnin mun sennilega ekki koma. Hvað er þá til ráða?  Það fer auðvitað eftir  því hvesu djúpt viðkomandi hefur sært tilfinningar þínar. Hvort þetta vinnufélagi, ættingi eða vinur eða bara einhver út í . Einnig skiptir máli hvernig þú sjálfur vinnur úr slíkum tilfinningum og hvernig persónuleiki þinn er samsettur þegar kemur a því vinna úr slíkum særindum. Þetta varðar því sjálfsmyndina, sjálfsöryggi og getur haft verulega neikvæðar afleiðingar fyrir andlega líðan manns og  þá hvaða bjargráð við notum til vinna úr þessu.  

Best er auðvitað opna á vandann við viðkomandi aðila en margir þora því ekki vegna áhættunnar verða enn meira særð eða vegna stolts. En stoltið ber þig bara hálfa leið þ það leysir ekki innri vandann.  

Það er líka mikilvægt lesa aðeins í aðilann sem særði þig. Gerir hann það oft t.d á vinnustaðnum og við marga aðra eða bara þig? Ertu á óheilbrigðum vinnustað? Er hann oft í árekstrum t.d innan fjölskyldunnar og á í samskiptavanda osfrv.  Það skiptir líka máli fyrir þína líðan þannig þú getur þá myndað þér skoðun um vandinn hans en ekki þinn. Ef svo er þá mun afsökunarbeiðnin hugsanlega aldrei koma en skiptir það þig þá einhverju máli? Sennilega ekki, mögulega verður þú bara reiður út í viðkomandi sem er þá líka eyðileggjandi tilfinning. Eða þá þú vorkennir viðkomandi fyrir vera eins og hann er og þá mildast þetta frekar. Þitt er auðvitað valið en ljóst er viðkomandi er ekki í stakk búinn til biðjast afsökunar af einhverjum orsökum sem koma þér ekkert við. 

Þetta er verra innan fjölskyldunnar en sama lögmál fylgir, ræðið þetta við viðkomandi til gera metið hvernig þið ætlið bregðast við. Það eru alltaf skýringar á öllu.

Hildur Jakobína Gísladóttir

Hildur Jakobína Gísladóttir

Vinnusálfræðingur og eigandi ráðgjafafyrirtækisins Officium ráðgjöf ehf. Hildur er með grunnmenntun í sálfræði, MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík, stjórnendamarkþjálfi(Executive Coach) frá opna Háskolanum, Leadership Management International stjórnendaþjálfi og mastersgráðu í Vinnusálfræði frá London Metropolitan University og mastersnemi í klínískri sálfræði frá sama skóla.

Meira