Pistlar:

13. janúar 2025 kl. 9:07

Lára Guðrún Sigurðardóttir (laragsigurdardottir.blog.is)

Fimm vinsælustu húðmeðferðirnar fyrir herra 

 

Karlmennskan hefur þvælst fyrir sumum þegar kemur að húðumhirðu. Á meðan sumar konur fara létt með fimm-skrefa húðrútínu eiga margir karlar í erfiðleikum með að taka eitt einasta skref. Ég þekki nokkra sem yrðu himinlifandi að hafa allt í einni vöru - sjampó, sápu, andlitshreinsi og andlitskrem! Starfs míns vegna vildi ég geta sagt að maðurinn minn væri að stelast í kremin mín. Hið sanna er að það tók mig langan tíma að fá hann til að byrja að nota andlitskrem. Eitt krem. Nú nokkrum árum síðar vinn ég hörðum höndum að fá hann til að nota einnig C-vítamín serum undir kremið. Það gengur misvel. Skrefin eru þung í húðrútínu herrans á mínu heimili. En hver segir að það sé ekki karlmannlegt að sinna húðinni?

Húðin er það líffæri sem verður mest fyrir barðinu á umhverfinu. Sólin er okkur lífsnauðsynleg og þegar hún lætur sjá sig lifnar allt við - líka mannshjartað. En eins mikið og við dáum hana er ekkert sem hraðar jafn mikið öldrun húðarinnar og útfjólubláu geislar hennar. Sólin fer ekki í manngreiningarálit og einkennast sólarskemmdir m.a. af andlitslínum, háræðaslitum og litabreytingum, sem er hægt að meðhöndla með sérsniðinni húðmeðferð. 

Karlmenn komast þó oftar upp með kæruleysi í húðumhirðu, en þeir hafa reynst vera með allt að 20% þykkari húð en konur. Húð þeirra hefur að meðaltali meira kollagen og elastín, sem gerir hana þéttari og stinnari. Hærra testósterón eykur einnig framleiðslu húðfeitis, en það tengist oft áberandi húðopum - stundum nefndar svitaholur sem er rangnefni, því húðfeiti og sviti hafa aðskilinn op í húðinni. Svitakirtlar eru reyndar einnig hlutfallslega fleiri hjá karlmönnum. Vegna fyrrgreindra sérstöðu húðar karlmanna eru þeir síður með viðkvæma húð en konur, auk þess sem öldrunaráhrif geta komið síðar fram. 

Þrátt fyrir að vera aðeins á eftir okkur konunum í að dúlla við húðina, þá eru þeir farnir að láta sjá sig meira á stofunni. Algengustu húðmeðferðirnar sem þeir koma í flokkum við sem H-in fimm:

  1. Háreyðing með laser er ein vinsælasta meðferðin hjá herrum. Bak er vinsælasta svæðið en önnur svæði eru einnig tekin, t.d. andlit, kynfærasvæði o.fl. Flestir sjá mun eftir fyrsta skiptið en það tekur nokkur skipti að ná viðunandi árangri.
  2. Háræðaslit er hægt að fjarlægja með laser, en ekki er óalgengt að eldri herrar koma með rauð slit í kringum nef - stundum eftir að einhver hefur bent á að viðkomandi sé með “eitthvað” á nefinu. Oft dugar eitt skipti en stundum þarf að koma aftur.  
  3. Húðslípun er klassísk meðferð hjá körlum því hún hreinsar vel húðina og frískar upp á útlitið með því að fjarlægja óhreinindi og dauðar húðfrumur yst í húðinni.
  4. Húðhreinsun er mildari meðferð en húðslípun og vinsæl meðal yngri herramanna, en þessi meðferð hentar vel fyrir einstaklinga frá 14 ára aldri. Í meðferðinni eru hreinsaðir fílapennslar, bólur og miliakorn í húð.
  5. Húðflúreyðing með laser er einnig vinsæl meðal karlmanna, en við bjóðum upp á staðdeyfingu fyrir meðferðina. Oft er verið að fjarlægja húðflúr sem menn fengu sér ungir að árum og vilja nú losna við. Svo er þessi meðferð einnig vinsæl sem fyrst skrefið í því að breyta um húðflúr.

Fleiri meðferðir eru einnig teknar af kalmönnum eins og öflugasta laserlyftingin og fylliefni sem draga úr skuggaspili í andlitinu. Þá er hægt að bóka tíma í ráðgjöf fyrir þá sem eru óvissir. 

Vissulega er það undir hverjum og einum hvernig hann hlúir að sinni húð, en til að viðhalda heilbrigðri húð er skynsamlegt að gefa henni svolítinn gaum. Og skynsemi fer vonandi aldrei úr tísku. 



31. október 2024 kl. 8:58

Döpur án D-vítamíns

  Um þessar mundir skríður skammdegið yfir landið. Á morgnana þegar vekjaraklukkan segir að það sé tími til að vakna smýgur myrkrið inn í sálu mína og hvíslar að enn sé nótt. Síðar sama dag læðir það sér aftur inn að vitum mínum, allt of snemma, með þeim skilaboðum að það sé kominn háttatími. Jafnvel þótt heita eigi miðaftann. Já sum okkar eiga það til að detta í drunga og dæsa í svartamyrkri meira
19. júní 2024 kl. 7:35

Barbí brúnka

Ein fyrsta minning mín af læknisheimsókn nær aftur til upphaf táningsáranna. Móðir mín hafði áhyggjur af því hve föl og veikluleg ég væri. Læknirinn stakk upp á að senda mig í ljósabekk – enda var skaðsemi þeirra ekki þekkt á þeim tíma og ekkert verið að skoða hvort litlaus húðin gæti helgast af miklum tíðarblæðingum. Ljósabekkjaferðirnar urðu að vana og þau sem komin eru á minn aldur þekkja meira
22. febrúar 2024 kl. 22:57

Svona verður húðin heilbrigðari án áfengis 

“Ég ætla að hætta að drekka á morgun” hljómar kunnuglega, en ekki einungis undir tónum slagarans Blindfullur eftir Valgeir Guðjónsson og Sigurð Bjólu. Segja má að við mennirnir höfum átt í stormasömu sambandi við áfengi í yfir 9.000 ár, en við byrjuðum að brugga áfengi löngu áður en við fórum að skrifa. Líkt og með önnur fíkniefni nær áfengi heljartökum á heilanum. Við notum allskonar meira
17. apríl 2023 kl. 20:27

Að vakna sem ný manneskja 

  Í samfélagi sem er í gangi alla 24 tíma sólarhringsins er auðvelt að verða svefnvana. Vakna enn einn morguninn hugsandi: “ég fer fyrr í háttinn í kvöld” - þar til sami vítahringur endurtekur sig! Mikið hefur verið fjallað um mikilvægi svefns og síðustu ár hafa sjónir beinst að tengslum svefns og húðar. Það er nefnilega þannig að þegar maður sefur illa, þá verður húðin líka meira
22. janúar 2023 kl. 17:42

Hvaða húðmeðferð er best fyrir svolítið þreyttar konur um 45 ára?

  Við erum kannski duglega að taka mataræði eða hreyfingu í gegn svona í upphafi árs - en húðin er einnig mikilvæg fyrir heilbrigði. Hún er aðaltengingin okkar við umhverfið og síðan hefur verið sýnt að útlit húðarinnar tengist beint líðan okkar. Þá eldist húðin gjarnan hraðar en manneskjan sem hún hylur. Ástæðan fyrir því er að húðin er í beinum tengslum við umhverfið þaðan sem sólargeislar meira
11. janúar 2022 kl. 11:14

Af hverju roðnar maður? 

  Þú segir eitthvað og áttar þig eftir á að orðin gætu verið móðgandi. Kinnarnar hitna og hjartslátturinn eykst. Líklegt er að lófarnir verði örlítið þvalir og bragðlaukarnir greini vott af kopar. Þú skammast þín svolítið fyrir það sem þú sagðir og já - roðnar! Og ef þú roðnar ekki getur þú mögulega roðnað við tilhugsunina um hve vandræðalegt það væri ef þú myndir roðna. Hvað þá ef einhver meira
7. maí 2021 kl. 4:46

Haltu þér á tánum!

Þótt árin færast yfir er hugurinn ekkert endilega að fylgja tímatalinu. Þess vegna kemur alltaf jafn mikið á óvart þegar líkamleg einkenni öldrunar gera vart við sig. Fyrir nokkrum árum bankaði eitt slíkt upp á hjá okkur hjónum og sýndi ekkert fararsnið. Við vorum samstíga með tábergssig okkar og á tímabili við það að ganga af göflunum. Tábergssig er afskaplega hvimleiður kvilli, tala nú ekki um meira
21. janúar 2021 kl. 16:08

Að kalka á réttum stöðum

Eftir langan vetur má búast við því að farið sé að ganga á birgðirnar af sólskinsvítamíni. D-vítamín er eitt af fituleysanlegu vítamínunum sem er hormón og líkaminn getur geymt fyrir dimma daga í fitufrumum. Þrátt fyrir birgðahaldið er D-vítamínskortur algengur. Rannsókn sem birtist fyrir tæpu ári í Læknablaðinu sýndi að meirihluti íslenskra barna voru með gildi undir viðmiðunarmörkum. Þá man ég meira
11. nóvember 2020 kl. 17:42

Silkimjúkar hendur

Mikið hefur mætt á höndunum þínum sem af er ári. Sápa, þurrka, spritta. Versla í matinn. Sápa, þurrka, spritta. Bora í nef (já 91% viðurkenna að bora í nef). Sápa, þurrka, spritta. Opna hurð. Sápa, þurrka... Eftir þjösnaganginn er hætt við að einhverjir fingur séu farnir að taka á sig mynd Dauðadalseyðimerkurinnar, tala ekki um ef þú hefur viðkvæma húð. Handþvottur hreinsar hendurnar af meira
18. maí 2020 kl. 18:10

Er sólarvörn hættuleg?

Húðin á mörgum hér í Kaliforníu er eftirtektarverð, þá einkum miðaldra ljóst hörund sem fengið hefur að baða sig árum saman í Kaliforníusólinni. Húðin verður þurr, líflaus, leðurkennd, með mikið af línum og brúnum litaflekkjum. Sömu áhrif sjást eftir ljósabekki.  Að taka dúninn úr úlpu Á forsíðu fréttamiðils var nýlega fjallað um að fólk ætlaði að flykkjast um miðja nótt til að baða sig í meira
2. apríl 2020 kl. 5:38

Að ná slökun í streitu

  Hvert sem við lítum loga áminningar um hættuna sem við búum við um þessar mundir, ásamt skilaboðum um að koma sér í öruggt skjól. Það er skrítin tilfinning að geta ekki faðmað fólkið sitt. Að hafa sífellt á tilfinningunni að mögulega geti maður verið að smita aðra eða bera smit heim í kæruleysi. Glundroði, óvissa, einangrun, einmanaleiki og kvíði virðist vera daglegt brauð sem borið er á meira
4. mars 2020 kl. 17:14

Litlir lúmskir blettir

Bletturinn á vinstra læri dökknaði að því er virtist á einni nóttu. Uggur myndaðist innanbrjósts. Að vera af kvíðakyni sem gæti unnið heimsmeistaratitla væri keppt í áhyggjum var ekki að hjálpa mér. Um hugann flugu allar mögulegu verstu útkomurnar. Þangað til framheilinn á mér náði stjórn og sagði stelpunni að líklega yrði þetta allt í lagi.  Síðustu ár hef ég lært að þegar kvíði bankar upp á meira
16. janúar 2020 kl. 23:00

Tíu leiðir til að halda húðinni heilbrigðri

Það er stundum svo kalt inni hjá mér að ég er ekki viss um að fingurnir á lyklaborðinu séu mínir því ég hef næstum enga tilfinningu í þeim. Og sem verra er, húðin á handarbökunum skreppur saman eins og þurrkuð sveskja - ef sveskja getur verið náhvít á litinn. Allt þetta er tilkomið vegna þess að æðakerfið ákvað að halda hita á "mikilvægari" líffærum. Hvenær ákvað skaparinn meira
13. desember 2019 kl. 5:06

Það sem gerir þig að gulli

Hefurðu leitt hugann að því að leið þín um lífið er einstök. Enginn annar fetar í nákvæmlega sömu fótspor og því getur enginn sett sig fullkomlega í þín spor. Við göngum stundum í gegnum svipaða lífsreynslu en hvernig við upplifum hana er háð erfðum og umhverfi, sem mótar hvert og eitt okkar. Því erum við misvel í stakk búin til að takast á við áföll og lífsins verkefni sem verða á vegi okkar. Auk meira
mynd
30. október 2019 kl. 18:54

Halló vetur!

Við erum vön að setja vetrardekk undir bílinn þegar frysta tekur en fær húðin okkar næga athygli þegar kuldaboli byrjar að bíta í kinnar! Hvað gerist þegar kólnar í veðri - af hverju líta t.d. handarbökin út fyrir að vera tíu árum eldri? Og til hvers ættum við að verja húðina fyrir kulda? Þegar kólnar í veðri lækkar rakastig gjarnan í andrúmsloftinu sem þýðir að loftið verður þurrt og dregur til meira
mynd
30. ágúst 2019 kl. 4:02

Hin sanna fegurð

Hefurðu einhvern tíma fengið athugasemd um útlit þitt? Sjálf hef ég í gegnum tíðina fengið meira en ég kæri mig um. Nefið ku vera stórt, ennið hátt og handleggir stuttir eins og á mörgæs. Verandi með miðlungs sjálfstraust ferðaðist ég lengi með þá tilhugsun að láta minnka á mér nefið - aðeins erfiðara að eiga við handleggina og ennið! Ég prófaði þó að klippa á mig topp en hann varð svo grisjóttur meira
mynd
21. júní 2019 kl. 6:10

Sólbruni í skýjunum

Það er svo merkilegt að þó maður viti eitthvað upp á tíu þá fer maður ekki endilega eftir því. Það var alskýjað þennan dag þarna sem ég var stödd með fjölskyldunni í klifurferð hátt upp í fjöllum Ítalíu - svo hátt að við komumst í snertingu við skýin. Það var ekkert sérstaklega hlýtt. Líklega vegna veðuraðstæðna vorum við ekki innstillt á að vernda húðina og bera á okkur sólarvörn. Sem mér finnst meira
mynd
24. maí 2019 kl. 4:40

Allt nema hamingja og svefn. Nr.IV

Með kollageni fáum við 19 af þeim 20 aminósýrum sem líkami okkar notar til að byggja ýmiss prótein, ensím og fleira til að halda okkur gangandi. Sjálfur getur kroppurinn búið til tíu aminósýrur en hinar tíu þurfum við að fá með matnum okkar. Eina aminósýran sem við fáum ekki með kollagen fæðubótarefnum  er sú sem telst uppspretta gleði og svefns - tryptófan er nefnilega aðalhráefni serótóníns meira
7. maí 2019 kl. 3:56

Smiðir húðarinnar. Nr.III

Í húðinni þinni eru kröftugir smiðir að störfum allan sólarhringinn - eins og smiðirnir sem eru að gera borg og bæi fegurri. Nema smiðirnir í húðinni (kallast réttu nafni bandvefsfrumur) smíða aðallega kollagen og aðra góða muni. Í húðinni er mest smíðað á miðhæðinni (leðurhúð) en líka á öðrum hæðum og víðar í kroppnum.   Ómissandi verkfæri Eins og húsasmiður notar hamar til að smíða þá meira
23. apríl 2019 kl. 17:04

Æskubrunnur eða nýtt æði? Nr.II

Fiskihlaup á veisluborðum Hefur þú smakkað fiskihlaup - þetta sem var vinsælt á veisluborðum áttunda áratugsins? Þá varstu mögulega að borða kollagen óafvitandi því hlaupið sem heldur réttinum saman og kallast venjulega matarlím eða gelatín er unnið úr kollageni.  Orðið kollagen (e. collagen) er tekið úr grísku þar sem kolla þýðir lím og viðskeytið -gen þýðir afurð og vísar til þess að áður meira
11. apríl 2019 kl. 17:57

Æskubrunnur eða nýtt æði? Nr.I

Hrukkur minnka, húðin verður fallegri, hárið heilbrigðara og liðamótin mýkri ef við bætum kollageni á innkaupalistann - ef marka má auglýsingar. Vinsældir kollagens hafa aukist svo mikið að fyrir ári síðan var nær ómögulegt að finna það í búðum en núna er erfitt að sjá það ekki. Auk þess eru sífellt fleiri vörumerki að bætast í hillurnar.  Þó svo að það sé gott að eldast (já meira
4. mars 2019 kl. 18:20

Skulda­dag­arn­ir koma fram um fer­tugt

Okkar mikilvægasta klæði kemur í litrófi frá hvítu, svörtu og allt þar á milli. Stundum ber það keim af gulum lit og stundum út í rautt. Það heldur á okkur hita og kælir ef okkur verður heitt. Það endist okkur út lífið, ver okkur gegn innrás sýkla og reynir að forða okkur frá skaða - eins og einhverju beittu eða brennheitu. Það er nokkuð sjálfbært og endurnýjar sig á 28 dögum en byrjar að þynnast meira
Lára Guðrún Sigurðardóttir

Lára Guðrún Sigurðardóttir

Læknir og doktor í lýðheilsuvísindum með brennandi áhuga á líffræði líkama og huga. Meðhöfundur Húðbókarinnar (2022) og meðeigandi húðmeðferðarstöðvarinnar HÚÐIN skin clinic.

Meira