Fyrirkomulag jarðarfarar Filippusar prins var gert opinbert síðastliðin laugardag. Allt skipulag var þó tilbúið fyrir löngu, en vegna Covid þurfti að aðlaga skipulagið að núverandi sóttvarnarreglum í Bretlandi. Filippus sjálfur kom mikið að skipulagi að sinni eigin jarðarför, en má þá helst nefna líkbíllinn sem mun flytja hann í St. George kappelluna í Windsor. Er það sérstakur Land Rover sem Filippus hjálpaði til við að hanna fyrir jarðarförina.
Jarðarförin mun fara fram laugardaginn 17. Apríl kl. 15 (kl. 14 á íslenskum tíma). Almenningi verður meinaður aðgangur vegna Covid, en sýnt verður beint frá athöfninni. Athöfnin mun byrja á einnar mínútu þögn um allt Bretland. Áður en athöfnin hefst munu börn hans og barnabörn ganga á eftir líkbílnum, allir nema Elísabet sjálf. Filippus mun verða færður til hvíldar í konunglegu hvelfingunni í St. George Kapellunni, sem er sama kapella og þar sem Harry og Meghan giftu sig, og Eugenie og Jack Brooksbank.
Samkvæmt núverandi sóttvarnareglum mega 30 koma saman í Bretlandi í jarðarförum. Hefur verið gefið út að öll börn hans, og barnabörn munu vera viðstödd, ásamt mökum. Að undanskilinni hertogaynjunni af Sussex, en hún fékk ekki leyfi hjá lækni til að ferðast. Hún á von á barni í sumar og býr í Bandaríkjunum. Harry fer því án konu sinnar í jarðarförina og fer í sóttkví fyrir laugardaginn, þar sem um er að ræða jarðarför fær hann undartekningu og getur farið í 5 daga sóttkví en ekki 10 daga.
Ásamt nánustu fjölskyldumeðlimum, er ekki von á að neitt af barnabarnabörnunum verði viðstödd þar sem mörg þeirra eru mjög ung. Boris Johnson hefur tilkynnt að hann muni ekki mæta til að fleiri fjölskyldumeðlimiri geti verið viðstaddir.
Gestalistinn er ekki staðfestur en það er búist við að hann muni líta svona út:
Einnig munu frændsystkini Elísabetu vera viðstödd en það eru:
Samtals telur þetta 29 gesti, en ásamt þessum fjölskyldumeðlimum mun einkaritari Filippusar einnig vera viðstaddur athöfnina en það er Brigadier Archie Miller-Bakewell. Er þá talan komin upp í 30.
Details of The Duke of Edinburgh’s Funeral have been announced.
— The Royal Family (@RoyalFamily) April 10, 2021
The service will take place:
â—¾ï¸on Saturday 17 April 2021
â—¾ï¸at 3pm
â—¾ï¸in St George’s Chapel, Windsor
Find out more: https://t.co/jjzBksqxeu pic.twitter.com/8tj5oBJPQn