Sumarið er tími gleðskapar, braðgmikils matar og grillveisla en einnig tími sjóðheitra pitta samkvæmt indversku ayurvedafræðunum. Til að gera langa sögu stutta stendur pitta fyrir frumefnin eld og vatn sem býr í okkur öllum en er þó ríkjandi hjá þeim sem skora hæst sem pitta líkams/hugargerðir (taktu prófið). Það er alltaf gott að að hlúa að pittunni í okkur öllum en umfram allt ættu þeir að gera það sem koma sterkir út úr pitta prófinu. Því eins magnað element og eldurinn er getur pittan líka brunnið yfir og orðið ótrúlega súr og pirruð en vatnið getur líka slökkt eldinn.
Alveg eins og mannfólkið skiptast árstíðirnar hver í sína doshu sem eru; kapha, vata og pitta. Þær byggja á frumefnunum fimm; eter, lofti, eldi, vatni og jörð. Þegar allt er í jafnvægi innan hverrar manneskju erum við í mjög jákvæðu (sattvísku) ástandi. En fræðin kenna líka hvernig auðveldlega megi rétta úr þegar ójafnvægi skapast sem er að gera öndvert við það sem við erum í grunninn. Skoðum pittuna betur:
Pitta er dosha hreyfingar og umbreytinga
Pittan er ríkjandi á sumrin, raunar frá júlí fram í septermber (á norðlægum slóðum). Þar sem pittan stjórnast af eldi og vatni er í hún í sínu besta formi með góða meltingu, kýrskýr og iðandi af framkvæmdarorku. Ef meltingin er hins vegar ekki góð og orkan ekki upp á sitt besta kann pittan að verða pirruð, súr og hitinn jafnvel óþolandi.
Þegar pittan er í jafnvægi þá er hún:
Ástrík
Framkvæmdasöm
Með heilbrigða meltingu (á líka auðvelt með flókin prótein eins og mjólk og glúten)
Með gott blóðstreymi
Ákveðin
Tilbúin í jákvæðar breytingar.
Merki um pittu í ójafnvægi:
Bólur og útbrot
Fullkomnunarárátta
Gagnrýnin á aðra
Reið
Kaldhæðin
Meltingatruflanir/bakflæði
Öfgakennd
Við upplifum þó öll mismunandi útgáfur af pitta í ójafnvægi, kannski allt þetta hér að ofan eða bara eitt. Fyrst og fremst þurfa þeir sem eru sterkar pittur í sér að gæta sín. Þær eru í mestu hættunni á að fara úr jafnvægi á þessum tíma árs.
Borðið meiri pittaróandi og kælandi mat
Það er margt gott og einfalt sem hægt er að gera til að ná jafnvægi. Það er fegurðin við Ayurveda. Og haldið ykkur nú fast því sætur og sá sem kallast er samandragandi matur í daglegri fæðu kemur jafnvægi á pitta.
Sætt: Ok, það er í lagi að borða sætu með betri sykri í. Eins og hunang, mable, kókosykur , döðlur og allt það en kannski óþarfi að láta það taka yfir líf sitt.
Heilsusamlega fæðan sem róa eldinn og kælir vatnið er t.d.
Korn (þar með talið hafrar, bygg og hrísgrjón)
Ferskir heilir ávextir (melónur, kirsuber, fíkjur appelsínur, perur, plómur og ber),
Eldað rótargrænmeti (sætar kartöflur, gulrætur, rófur)
Kókoshnetuafurðir (þar með talið kókoskjöt, kókosmjólk kókosvatn)
Avóvadó
Mjólkurvörur (feit mjólk, rjómi)
Fennel (bæði fræin og grænmetið)
Beiskt: Beiskur matur er léttur, hefur róandi áhrif á líkamann og jafnvægistillir hitann í pitta líkams/hugargerðinni. Til að njóta góðs af beiskum mat bættu þessu inn:
Laufríku grænmeti
Tei, hvort sem er svörtu, með blöndu af túnfífli (dandelion) eða myntu. Ekki hafa það sjóðheitt.
Beiskir ávextir (þroskað greip, sítrónur og græn epli)
Grænt grænmeti (aspas, grænar baunir agúrkur, kúrbítur)
Ferskar jurtir (sérstaklega kóríander)
Samandragandi: Samandragandi fæðu getur verið kúnst að finna, en þú getur merkt hana á því ef hún er þurr á tungunni. Þessi matur er kælandi og um leið léttir á líkama og anda.
Skimaðu eftir.
Baunum
Linsum
Ávöxtum (eplum, banönum, granaeplum og mjög safaríkum ávöxtum)
Hráu grænmeti eins og spergilkáli og sellríi)
Steinselju, túrmerki
Fita og olíur: Þetta meikar allt sens líkt og þegar eldurinn logar glatt getur pittan orðið mjög þurr. Hún þarf líka að gæta þess að smyrja sig að innan með feitri fæðu, í hófi þó. Bestu heilsusamlegu olíurnar á sumrin eru:
Avóvadó
Kókosolía
Ghee
Sólblómaolía
Olívuolía
Borðaðu minna af hitagefandi fæðu:
Á meðan við þurfum flest að kæla okkur í sumar ættum við að forðast eða minnka til muna fæðu sem er mjög sölt, súr og sterk.Borðaðu/drekktu eftirfarandi í hófi:
Áfengi (sérstaklega rautt)
Pikklaða fæðu
Soja sósu
Hvítlauk
Cayenne pipar
Alla heita piparávexti
Heitar sósu
Súkkulaði
Næturskuggagrænmeti (laukur, tómatar)
Súrar mjólkurvörur (sýrður rjómi)
Fennel gæti verðið besti vinur þinn í sumar
Fennel er undursamlegt grænmæti sem örvar heilbrigða meltingu á sama tíma og það kælir og eykur upptöku næringarefna. Eitt það dásamlega við fennel er að það er hrikalega gott ef þú sneiðir niður og sáldrar á það smá salti (í hófi) og olífuolíu og hefur það sem snakk eða salat með mat.
Og svo er það fennelteið:
Prófaðu þetta einfalda fennel te, sem er raunar gott eftir hverja máltíð.
1 til 2 tsk mulin fennelfræ
1 bolli sjóðheitt vatn
Undirbúningur:
Settu mulin fennelfræ í sjóðheitt vatnið og láttu standa í 10 mínútur. Síaðu fræin frá og drekktu þegar það er orðið volgt. Raunar er frábært að gera stærri skammta og eiga á flösku inn í ísskáp. Fennel te er mjög svalandi sumardrykkur og sumir bæta líka við kóríander og kúmín fræjum, sem gerir teið ennþá áhugaverðara.
Vertu kúl í sumar
Sumarið er tíminn til að fagna og njóta sólar. Því er um að gera að passa upp á pittuna svo allt fari ekki úr skorðum. Það er svo mikil og falleg orka í pittunni sem við gætum öll notið ef við erum þó ekki nema sé smávegis meðvituð. Við verðum kærleiksríkari, orkumeiri og skemmtilegri.
Það sem kallast sattvískt kúl.