Verslunin Epic var opnuð formlega í gær og af því tilefni var slegið upp teiti í versluninni. Í Epic fæst lífsstílstengdur fatnaður frá Volcom og Nike Action sports.
Dj Benni B-Ruff hélt uppi fjörinu með taktföstum tónum og boðið var upp á léttar veitingar.
Volcom var stofnað af tveimur félögum árið 1991 en er nú í eigu PPR sem á Gucci, Puma, Stella McCartney, Alexander McQueen og fleiri merki sem eru leiðandi í tískuheiminum í dag.