Norðursalt efndi til teitis í Sjávarklasanum á dögunum. Norðursalt er saltverksmiðja sem framleiðir salt á Reykhólum við Breiðafjörð. Fjölmenni var í boði Norðursalts og var gleðin við völd.
Saltgerðarmennirnir Garðar Stefánsson og Daninn Søren Rosenkilde, eigendur Norðursalts, sögðu í viðtali við mbl.is á dögunum að þeir hefðu mikinn áhuga á að komast í samband við Margréti Danadrottningu og má lesa nánar um það mál HÉR.