Einn ástsælasti grínleikari þjóðarinnar, Karl Ágúst Úlfsson, og Ágústa Skúladóttir leikstjóri mættu saman á leikritið Annan tenór sem frumsýnt var í Iðnó á laugardaginn var.
Haustið 2003 frumsýndi Guðmundur Ólafsson leikari stykkið Tenórinn í Iðnó og varð það mjög vinsælt. Um síðustu helgi var Annar tenór frumsýndur og laðaði verkið að sér mikið af fólki.