Það var stemning á Kjarvalstöðum þegar BIOEFFECT bauð í partí. Fallegar konur með fallega húð voru áberandi í boðinu eins og sést á myndunum.
BIOEFFECT hétu áður EGF. EGF HúðdroparTM hefur verið mest selda snyrtivaran á Íslandi frá því hún kom fyrst á markað í maí árið 2010. Aðrar EGF-vörur hafa einnig notið vinsælda hjá íslenskum konum, en EGF-vörulínan inniheldur nú dagkrem fyrir venjulega og þurra húð, augnserum, húðnæringu fyrir líkamann og kornahreinsi.
EGF-frumuvakinn í BIOEFFECT-húðvörunum er framleiddur með erfðatækni í byggi í gróðurhúsi ORF Líftækni í Grindavík. Nafnið BIOEFFECT endurspeglar sérstöðu varanna þar sem fyrri hluti orðsins vísar til einstaks uppruna í líftækni (biotechnology) og seinni hlutinn í einstaka virkni (effect).
BIOEFFECT-húðvörurnar voru fyrst kynntar á erlendum markaði í London í desember árið 2010. Á fimm árum hafa þær farið sigurför um heiminn og BIOEFFECT er nú orðið eitt þekktasta íslenska vörumerkið á almennum neytendamarkaði erlendis. Yfir 1000 greinar hafa verið skrifaðar um BIOEFFECT í mörgum virtustu tískutímaritum heims, svo sem í Vogue, ELLE, Harper's Bazaar og Marie Claire. BIOEFFECT hefur hlotið mörg virtustu verðlaun hins alþjóðlega snyrtivörugeira m.a. í Þýskalandi, Danmörku, Hollandi, Suður-Afríku og nú síðast í Belgíu. BIOEFFECT-vörurnar eru seldar í 25 löndum í verslunum á borð við Colette í París, Selfridges í London, Harvey Nichols í Hong Kong og Sephora í Sydney.