Meyjan er með góð spil á hendi í júní

Meyjan ætti að gera notalegt í kringum sig í júní …
Meyjan ætti að gera notalegt í kringum sig í júní að sögn Susan Miller.

Kæra Meyja, það verður brjálað að gera hjá þér þennan mánuðinn, bæði heima við og í vinnunni. Í upphafi mánaðar ættir þú að gefa þér góðan tíma í að huga að heimilinu og gera notalegt í kringum þig. Ef þú ert að kaupa nýja eign eða að leigja nýja íbúð þá skalt þú lesa smáa letrið vandlega.

Eftir 16. júní færð þú góðar fréttir í vinnunni, vertu með ferilskrána þína við höndina. Þetta er rétti tíminn til að taka næsta skref hvað varðar starfsframa. Þú ert með góð spil á hendi, þú ert ástríðufull, orkumikil og drifkrafturinn er til staðar. Haltu bara áfram!

Frá 24. júní- 8. ágúst átt þú að einbeita þér að félagslífinu. Gefðu vinum þínum og fjölskyldu sérstaka athygli og gleymdu vinnunni í smá stund.

Mánuðurinn mun enda vel og þann 28. júní ættir þú að fá óvænta peningasummu ef þú hefur augu og eyru opin fyrir nýjum tækifærum. Þetta mun koma þér á óvart og gleðja þig mjög. 

Spá Susan Miller má finna í heild sinni á AstrologyZone.com.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda