Fjölmennt var í Dúfnahólum 10 í gærkvöldi, þar sem fram fór glæsilegt opnunarpartý. Veislan var þó ekki í Breiðholtinu, heldur er um að ræða nýjan skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur. Staðurinn stendur við Hafnarstræti og heitir eftir þessu merka heimilisfangi úr kvikmyndinni Sódómu Reykjavík, en hann er innréttaður eins og heimili.
Félagarnir Unnar Helgi Daníelsson og Arnar Finnur Arnarsson er mennirnir á bak við staðinn. „Þessi hugmynd hefur legið í loftinu í mörg ár, að slá heimapartýi og skemmtistað saman í eitt. Svo kom nafnið Dúfnahólar 10 upp á hjá félaga okkar og okkur fannst það passa vel við pælinguna, það er alíslenskt og vísar í frægasta partý Íslandssögunnar,“ sagði Unnar Helgi í samtali við mbl.is í gær.
Frétt mbl.is: Sjáðu Dúfnahóla 10