Það var sannkölluð James Bond stemning í Safnahúsinu við Hverfisgötu þegar Sony Mobile hélt kynningarkokkteil til þess að kynna nýja símann sem sjálfur James Bond notar.
James Bond þemað var tekið alla leið með pókerborðum „A la Casino Royal“ og kepptu Auðunn Blöndal og Steindi JR í póker eins og menn gera í bíómyndum. Sigríður Thorlacius söng Bond lög og Sirkús Ísland var með atriði. Eins og sést á myndunum var mikil stemning í loftinu þetta kvöld.