Tómas Guðbjartsson lét sig ekki vanta þegar Baltasar Kormákur og RVK Studio héldu teiti í tilefni af velgengni Ófærðar og til að fagna lokatökum á Eiðnum, sem er nýjasta mynd Baltasars. Teitið var haldið á Bryggjunni Brugghúsi úti á Granda og fylltist húsið af fólki eftir að Eddunni lauk.
Förðunarmeistarinn Ragna Fossberg fékk heiðursverðlaun Eddunnar fyrir störf sín sem sminka, en hún hefur sminkað og búið til gervi í sjónvarpsþáttum og kvikmyndum alla sína starfævi. Hún mætti sérstaklega hress og kát í teitið ásamt Birni Emilssyni manninum sínum. Í teitinu voru líka handritshöfundar Ófærðar, leikarar og aðrir aðstandendur sem nutu þess að skála fyrir góðu gengi sjónvarpsþáttarins. Það má, enda ekki á hverjum degi sem sjónvarpsþáttur fær þjóðina til að setjast saman fyrir framan sjónvarpið á sama tíma.
Magnús Geir Þórðarson og Baltasar Kormákur Samper.
mbl.is/Freyja Gylfa
Hjörtur Grétarsson og Magnús Viðar Sigurðsson.
mbl.is/Freyja Gylfa
Ingibjörg Ýr Óskarsdóttir og Guðrún Sesselja Arnardóttir.
mbl.is/Freyja Gylfa
Pálmi Gestsson, Benedict Andrews og Ólafía Hrönn Jónsdóttir.
mbl.is/Freyja Gylfa
Bragi Þór Hinriksson og Jóhanna Frímann.
mbl.is/Freyja Gylfa
Jón Arnór Pétursson.
mbl.is/Freyja Gylfa
Salka Sól Eyfeld, Arnar Freyr Frostason, Hrafnkell Örn Guðjónsson og Gauti Þeyr Másson.
mbl.is/Freyja Gylfa
Páll Hjaltason og Sigurjón Kjartansson.
mbl.is/Freyja Gylfa
Atli Geir Grétarsson, Kristján Franklín Magnús, Sigurður Skúlason, Þórunn Magnea Magnúsdóttir, Jóhann Sigurðsson og Pálmi Gestsson.
mbl.is/Freyja Gylfa
Björn Emilsson og Ragna Fossberg.
mbl.is/Freyja Gylfa
Jón Arnór Pétursson.
mbl.is/Freyja Gylfa
Bjarni Lárus Hall og Hildigunnur Finnbogadóttir.
mbl.is/Freyja Gylfa
Gói Karlsson og Ingibjörg Ýr Óskarsdóttir.
mbl.is/Freyja Gylfa