Það var glatt á hjalla í gær þegar útgáfu bókarinnar Drungi eftir Ragnar Jónasson var fagnað. Bókin fjallar um ungt par sem fer í rómantíska ferð á Vestfirði árið 1987. Þessi ferð endar á skelfilegan hátt sem á eftir að hafa afleiðingar.
Ákaflega vel var mætt til Ragnars eins og sést á myndunum. Það sem vakti athygli er að það er eins og gestir hafi sammælst um að klæðast bláum fötum því varla var þverfótað fyrir bláklæddu fólki.
Teitur Björn Einarsson nýbakaður þingmaður og sonur Einars Odds Kristjánssonar, Margrét Gísladóttir og Halldór Halldórsson borgarfulltrúi.
mbl.is/Ómar Óskarsson
Sigmundur Ernir Rúnarsson, Bjarni Þorsteinsson útgáfustjóri hjá Veröld og Pétur Már Ólafsson.
mbl.is/Ómar Óskarsson
Pétur Blöndal, Ásdís Halla Bragadóttir, Aðalsteinn Egill Jónasson og Þórður Þórarinsson
mbl.is/Ómar Óskarsson
Ragnar Jonasson rithöfundur var í fyrsta fermingarhópi hjá séra Vigfúsi Þór Árnasyni í Grafarvogssókn.
mbl.is/Ómar Óskarsson