Veitingastaðurinn Library opnaði á dögunum í Keflavík. Af því tilefni var blásið til teitis á staðnum sjálfum og var aldeilis stuð og stemning. Arnar Gauti Sverrisson og Jón Gunnar Geirdal sáu um að breyta staðnum, búa til nýjan matseðil og hönnuður stemningu sem þykir ákaflega eftirsóknarverð.
Það voru ekki bara innfæddir sem mættu í teitið heldur keyrði fólk úr bænum til að líta staðinn augum.