Elísabet Gunnarsdóttir viðskiptafræðingur og eigandi Trendnet og Gunnar Steinn Jónsson handboltastjarna gengu í hjónaband í dag. Athöfnin sjálf fór fram í Fríkirkjunni. Séra Hjörtur Magni Jóhannsson gaf brúðhjónin saman.
Hjónin búa í Svíþjóð þar sem Gunnar Steinn spilar handbolta. Hjónin voru glæsileg þegar þau gengu út úr kirkjunni en eins og sést á myndunum var ást í loftinu og ferlega góð stemning.