Svava Johansen eigandi NTC sem rekur til dæmis Galleri 17, Smash og GS skó skemmti sér vel með starfsfólki fyrirtækisins í gær.
Árshátíð fyrirtækisins var haldin í Petersen svítunni í Gamla bíó og var gleðin við völd eins og sést á myndunum. Svava er hin eina sanna íslenska tískudrottning enda hefur hún lifað og hrærst í heimi tískunnar síðan hún var 17 ára gömul en síðan þá hefur fyrirtækið stækkað mikið.