Bryndís Jóna Jónsdóttir ráðgjafi og núvitundarkennari var að gefa út bókina Núvitund í dagsins önn. Í bókinni er leiðarvísir að aukinni vellíðan, einbeitingu og jafnvægi í lífinu.
Í tilefni af útgáfunni bauð Bryndís Jóna til teitis í Eymundsson í Hafnarfirði. Eins og sjá má á myndunum var vel mætt í boðið og allir í mjög miklu jafnvægi.
Bókin snýst um að fólk nái sálarró og sé ekki andlega fjarverandi í eigin lífi. Sé ekki að fara á fætur, kíkja á símann sinn, borða, kíkja á símann sinn, læra eða vinna, kíkja á símann sinn, tala við fólkið í kringum sig og kíkja á símann sinn.
En hvað getum við gert til þess að vera meira til staðar og ekki alltaf að láta allt trufla okkur? Ætli svarið sé ekki að finna í Núvitund í dagsins önn. Það er alla vega ágætt fyrsta skref.