Drottningarnar í FKA léku á alls oddi í gær þegar árlegt Golfmót FKA fór fram á Akranesi. Sigrún Edda Jónsdóttir formaður Golfnefndar FKA segir að það sé fljótt að fyllast á mótin og því var brunað út úr bænum á tveimur rútum.
Rakel Óskarsdóttir FKA-kona tók vel á móti hópnum en hún er framkvæmdastjóri hjá Golfklúbbnum Leyni á Akranesi.
„Tengslamyndun í Félagi kvenna í atvinnulífinu FKA fer fram á margvíslegan hátt og árlega golfferðin er mjög góð leið til að efla tengslanetið enda hefur það sýnt sig að fjölmörg vináttu- og viðskiptasambönd hafa myndast í ferðum FKA,“ segir Sigrún Edda sem er formaður Golfnefndarinnar sem þakkar öflugum félagskonum FKA fyrir vinninga og glaðninga.
„í Golfnefndinni eru þær Bryndís Emilsdóttir, Elfa Björk Björgvinsdóttir, Kristín Björg Jónsdóttir, Sigrún Traustadóttir, Soffía Theodórsdóttir og Vala Valtýsdóttir. Það er skemmtilegt verkefni að skipuleggja hið árlega mót og virkja FKA konur til að taka þátt í því til dæmis með fyrirtækjakynningum, segir Sigrún Edda. „Fjölmargar FKA konur styðja við bakið á okkur með glæsilegum vinningum og teiggjöfum. Sú hefð hefur síðan komist á að golfnefnd hefur heimild stjórnar til að fara annað hvert ár erlendis og hitt árið heldur hún mót innanlands. Í ár hefst golfsumarið því hjá okkur á Aranesi.“