Íslenska kvikmyndin Hvernig á að vera klassa drusla var forsýnd í vikunni en myndin er frumsýnd í kvöld.
Myndin fjallar um Karen sem er lífsreynd sveitapía sem kemur á vel pimpaða bílnum sínum að sækja vinkonu sína, Tönju, sem er fálát borgarsnót. Á þessu augnabliki er Tanja að hætta með kærasta sínum og fara þær tvær saman út á land þar sem þær hyggjast vinna á stóru sveitabýli yfir sumarið. Tanja á erfitt með sig eftir sambandsslitin og virðist strax sjá eftir ferðinni en þegar á býlið er komið fellur hún fljótt fyrir myndarlegum sveitapilti þar á bæ.
Hins vegar þegar tilraunir hennar til að heilla piltinn upp úr skónum misheppnast herfilega byrjar hún að dást að því hvernig Karen virðist geta sofið hjá hverjum sem er án væntinga eða eftirmála.
Tanja biður því Karen að kenna sér að vera eins og hún. Kenna henni hvernig á að vera klassa drusla.
Aðalleikarar myndarinnar eru Ásta Júlía Elíasdóttir, Ylfa Marín Haraldsdóttir, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Þorsteinn Bachmann og Ólafía Hrönn Jónsdóttir. Ólöf Birna Torfadóttir leikstýrði myndinni.