Fjölmennt var á opnun Listahátíðar í Reykjavík á laugardaginn þegar Katrín
Jakobsdóttir forsætisráðherra opnaði sýninguna Meira ástandið eftir hljóðlistakonuna
Inki. Verkið er hluti af dagskrá hátíðarinnar 2020. Verkið er sýnt í Skálanum í Hörpu sem er á K2, neðri bílakjallara. Um er að ræða 360 gráða upplifun þar sem fjögur videoverk umkringja áhorfandann og tónlistin er leikin úr mörgum hátölurum í rýminu.
Verkið er sýnt á heila og hálfa tímanum og er tæplega hálftími að lengd, það er sýnt í
hringrás og gestum er frjálst að ganga inn og út að vild.
Kjartan Oddason, Stefanía Erla Óskarsdóttir og Stefán Þór Helgason.
Friðrik Pálsson, Sólveig Karlsdóttir og Lára Magnúsardóttir.
Daði Snær Pálsson, Daria Sól Andres, sýningarstjóri sýningarinnar, Sturla Freyr
Gíslason.
Auður Albertsdóttir, Eiríkur Sigurðsson, Rakel Tómasdóttir og Anna Marsíbil Clausen.
Kristófer Rodriguez Svönuson, Ingibjörg Turchi og Margrét Arnardóttir.
Aron Leví Beck og Karítas Harpa Davíðsdóttir ásamt börnunum.
Ingibjörg Friðriksdóttir talar um verkið.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra opnaði sýninguna.
Ásdís Eva Ólafsdóttir, Erla María Markúsdóttir, Hrafnkell Berndsen og Auður Albertsdóttir.