World Class-hjónin Björn Leifsson og Hafdís Jónsdóttir létu sig ekki vanta í opnunarpartí klúbbsins Bankastrætis við Bankastræti 5 í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi. Dóttir þeirra, Birgitta Líf Björnsdóttir, stendur fyrir opnun staðarins sem verður opnaður formlega klukkan 19:00 í kvöld.
Allar helstu samfélagsmiðlastjörnur landsins mættu í partíið auk listamanna og framafólks af yngri kynslóðinni.