Startup Supernova-hraðallinn er í fullum gangi og fyrsti viðburður sumarsins var haldinn í Grósku á fimmtudagskvöldið. Icelandic Startups keyrir hraðalinn en bakhjarlar verkefnisins eru Nova og Gróska auk þess sem Huawei styrkti sérstaklega teymið FOMO.
Davíð Helgason, fjárfestir og einn ríkasti maður Íslands, mætti á viðburðinn og ræddi við unga frumkvöðla.
Fimm teymi af þeim tíu sem taka þátt í hraðlinum kynntu sig og sín verkefni fyrir hópi fólks. Teymin höfðu eina mínútu til að koma sinni snilld til skila og stóðu sig vel. Fjöldi fjárfesta og vina var viðstaddur, bubblubíllinn sá um veitingar og DJ Jay-O þeytti skífum en þess ber að geta að hann tók sjálfur þátt í Supernova í fyrra með fyrirtæki sitt Stubb.
Næstu fimm teymi munu kynna sig 15. júlí í Grósku og eru allir velkomnir.