Uppistandshópurinn VHS hefur verið vinsæll að undanförnu. Á föstudaginn síðasta frumsýndi hópurinn sýninguna VHS krefst virðingar í Tjarnarbíó og var margt við manninn á sýningunni.
Að baki VHS standa þau Vigdís Hafliðadóttir, Vilhelm Neto, Hákon Örn Helgason og Stefán Ingvar Vigfússon.
Á meðal sýningagesta voru leikaraparið Guðmundur Felixson og Þuríður Blær Jóhannsdóttir sem og leikkonan Dóra Jóhannsdóttir svo einhverjir séu nefndir.