Heitasta par bæjarins, leikstjórinn Baltasar Kormákur og listakonan Sunneva Ása Weisshappel, lét sig ekki vanta í opnunarhóf RIFF sem fram fór í Gamla bíó á fimmtudaginn. Kvikmyndahátíðin hófst 30. september og stendur til 10. október.
Samband Hollywood-leikstjórans og listakonunnar komst í fréttir vorið 2019. Hún mætti með honum á Evrópsku kvikmyndaverðlaunin í Berlín sama ár. Alvara hefur færst yfir sambandið en í september greindi Smartland frá því að þau væru skráð í sambúð.
Parið voru ekki einu stjörnurnar á svæðinu en Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndaleikstjóri og leikkonan Aníta Briem sáust til að mynda spjalla saman við barinn með bjór í hendi.