Það var mikið hlegið á prófkjörsgleði Herdísar Önnu Thorvaldsdóttur í gær þegar hún tók á móti vinum og vinveittum á sínum hverfisstað, Ölveri í Glæsibæ. Herdís sækist eftir fjórða sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í komandi kosningum.
Karl Örvarsson og Pálmi Sigurhjartar fóru á kostum og komu Herdísi á óvart með stórum borða þar sem á stóð, „komdu aftur til mín Dísa“ en hún var einmitt varaborgarfulltrúi á síðasta kjörtímabili.
Herdís fór á svið og talaði til síns fólks og annarra frambjóðenda. Hún kom inn á sína sýn á þátttöku í prófkjörum, hún vill ekki lýsa þeim sem prófkjörsslag eða baráttu heldur kapphlaupi.
„Við berjumst ekki þar til síðasti maður er fallinn heldur erum við í sama liði og þó hver og einn vilji ná sem bestum persónulegum árangri þá nýtum við kjölsogið hvert frá öðru og að keppni lokinni stöndum við saman sem heild,“ sagði Herdís.
Gleðin þótti góður endapunktur á kapphlaupið, það var skemmtileg stemmning og hugur í þeim frambjóðendum sem viðstaddir voru en kosning í prófkjörinu hófst í morgun og líkur annað kvöld.
Karl Örvarsson og Pálmi Sigurhjartar fóru á kostum og komu Herdísi á óvart með stórum borða þar sem á stóð, „komdu aftur til mín Dísa“ en hún var einmitt varaborgarfulltrúi á síðasta kjörtímabili.
Ljósmynd/Håkon Broder Lund
Herdís ásamt börnum sínum Elektru Ósk, Gabríelu Jónu og Þorvaldi.
Ljósmynd/Håkon Broder Lund
Diljá Mist Einarsdóttir.
Ljósmynd/Håkon Broder Lund
Eiður Welding og Hulda Guðmunda Óskarsdóttir.
Ljósmynd/Håkon Broder Lund
Herdís ásamt Benjamín Náttmörður og Tjaldur Norðfjörð Sæmundsson.
Ljósmynd/Håkon Broder Lund
Herdís og Guðfinnur S. Halldórsson.
Ljósmynd/Håkon Broder Lund
Steinar Ingi Kolbeins.
Ljósmynd/Håkon Broder Lund
Steinunn Anna Hannesdóttir.
Ljósmynd/Håkon Broder Lund
Herdís, Gabríela Jóna Ólafsdóttir, Diljá Mist Einarsdóttir, Magnús Ásmundsson og Erla Ásmundsdóttir.
Ljósmynd/Håkon Broder Lund
Pálmi Sigurhjartarson og Valgerður Guðnadóttir.
Ljósmynd/Håkon Broder Lund
Ryan Patrekur og Fríða Rakel Kaaber.
Ljósmynd/Håkon Broder Lund
Herdís bauð upp á pylsur frá Bæjarins bestu.
Ljósmynd/Håkon Broder Lund
Elektra Ósk og Valgerður Guðnadóttir.
Ljósmynd/Håkon Broder Lund
Eiður Welding mætti ásamt móður sinni, Agnesi Veroniku og Bríeti, en Agnes átti afmæli þetta kvöld.
Frambjóðendurnir Helgi Áss Grétarsson, Ingibjörg Gréta Gísladóttir og í baksýn má sjá Kjartan Magnússon.
Ljósmynd/Håkon Broder Lund
Ljósmynd/Håkon Broder Lund
Auðna Hödd og Elín Oddný Sigurðardóttir ásamt Herdísi.
Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir og Dalía Lind Pálmadóttir ásamt Herdísi.
Elva Ósk, Ingibjörg Pálma og Lovísa Jónsdóttir.
Það var mikil stemning á Ölveri.
Ljósmynd/Håkon Broder Lund
Ljósmynd/Håkon Broder Lund
Ljósmynd/Håkon Broder Lund