Útvarpsstjarnan Gunna Dís Emilsdóttir og eiginmaður hennar, Kristján Þór Magnússon fyrrverandi sveitarstjóri, létu sig ekki vanta þegar leikstjórinn Baltasar Kormákur bauð á forsýningu á nýjustu mynd sinni Beast. Sýningin fór fram í Laugarásbíói.
Leikarinn Idris Elba fer með aðalhlutverkið í myndinni og sagði Baltasar Kormákur frá því á dögunum að þeir hefðu rætt það margoft í gegnum tíðina að vinna saman. Draumurinn hafi því ræst í þessari kvikmynd.
„Þetta er um fjölskyldu. Foreldrarnir hafa skilið að borði og sæng fyrir nokkru síðan. Konan verður svo veik og fellur frá. Hún hafði lofað dætrum sínum tveimur að fara með þær til Afríku til þorpsins þaðan sem hún er og pabbinn ákveður að fara í þessa ferð með þær í staðinn,“ segir Baltasar um kvikmyndina.