Það var glatt á hjalla í Háskólabíói í gærkvöldi þegar íslenska kvikmyndin Svar við bréfi Helgu var frumsýnd. Þar voru til dæmis Páll Valsson útgáfustjóri hjá bókaútgáfunni Bjarti Veröld og Eva María Jónsdóttir jógakennari, fræðimaður og fjölmiðlakona. Aðalleikarar myndarinnar voru á svæðinu en það eru þau Þorvaldur Davíð Kristjánsson, Aníta Briem, Björn Thors og Hera Hilmarsdóttir.
Kvikmyndin Svar við bréfi Helgu er byggð á bók Bergsvein Birgisson rithöfundar sem kom út hjá Bjarti Veröld 2010. Ása Helga Hjörleifsdóttir er leikstjóri myndarinnar sem er hennar önnur kvikmynd en áður gerði hún Svaninn.