Það var sannarlega bleik stemning í Háskólabíói í gærkvöldi á opnunarviðburði Bleiku slaufunnar. Rithöfundasysturnar Kamilla og Júlía Margrét Einarsdætur mættu ásamt móður sinni Hildur Baldursdóttur.
Bleika slaufan er árlegt árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélags Íslands. Í ár er slagorð átaksins Sýnum lit en Bleika slaufan er tileinkuð baráttunni gegn krabbameini hjá konum.
Slaufuna í ár hönnuðu þau Helga Friðriksdóttir og Orri Finnbogason hjá Orrifinn skartgripum.