ÍMARK dagurinn og Lúðurinn, sem er uppskeruhátíð fólksins í auglýsingabransanum, var haldinn hátíðlegur í Háskólabíó á föstudaginn var. Vel var mætt á hátíðina og mörgu að fagna enda íslensk auglýsingafólk í sérflokki. Þetta er fólkið sem vinnur við það að búa til stemningu og hrífa fólk með sér.
Eins og sjá má á myndunum var fólk almennt með bros á vör því mörgu var að fagna!