Íslenska hönnunarverslunin Epal tók forskot á HönnunarMars og bauð völdum gestum á foropnun á sýningu íslenskra hönnuða í versluninni. Það var fiðringur í fólki því framundan er mikil hönnunarveisla vegna HönnunarMars.
Síðustu 15 ár hefur Epal staðið fyrir sýningu sem þessari en í ár var það Halla Bára Gestsdóttir, hönnuður og húsahvíslari, sem sá um sýningarstjórn. Þeir sem sýna verk sín á sýningunni eru Anna Thorunn, Arkitýpa, Chuck Mack, Dögg Desig, Gæla, Ihanna Home, Kormákur og Skjöldur, Minarc og Urð.
Eins og sjá má á myndunum var gleðin allsráðandi!