Íslenska hönnunarfyrirtækið VIGT stóð fyrir sýningunni Af jörðu í tengslum við HönnunarMars. Á sýningunni mátti sjá glasagarða frá Vessel, húsgagnahönnun frá VIGT í samvinnu við Granítsmiðjuna ásamt sjónrænni nálgun Graen Studios gagnvart viðfangsefninu. Unnið var með náttúruleg efni þar sem þekking og handbragð leiða af sér falleg húsgögn og fylgihluti fyrir heimilið.
Áhugi á plöntum og náttúru hefur aukist í íslensku samfélagi og sífellt er verið að leita leiða til að samþætta náttúruna lífi fólks og heimilum.
Á þessari sýningu voru glasagarðar til sýnis í fyrsta sinn á Íslandi. Samspil glasagarða, húsgagna og fylgihluta sýndu hvernig nýta mætti náttúrulegan efnivið í hönnun og færa náttúruna inn á heimilið.
Vessel er fyrirtæki í eigu Írisar Erlingsdóttur sem hefur um 10 ára skeið sérhæft sig í plöntum og gerð glasagarða (e. Terrarium) fyrir heimili og vinnustaði. VIGT hefur hannað og framleitt húsgögn og heimilismuni frá árinu 2013. Áhersla hefur verið lögð á framleiðslu í heimabyggð þar sem gæði eru tryggð áður en varan leggur leið sína inn í nýtt rými. Granítsmiðjan hefur undanfarin ár verið í fararbroddi í steinsmíði á Íslandi og sérhæft sig í sérsmíði.
Boðið var upp á léttar veitingar og líflega tónlist.