Fjölmennt var á opnunarhátíð Evrópska kvikmyndamánaðarins sem sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi, í samstarfi við Bíó Paradís, hélt á dögunum.
Hátt í 200 manns mættu og fögnuðu fjölbreytileika evrópskra kvikmynda og menningarsamstarfi milli Íslands og ESB. Meðal gesta voru stjörnuparið Baltasar Kormákur og Sunneva Ása Weisshappel, Ágúst Guðmundsson leikstjóri ásamt Bergrúnu Helgu Gunnarsdóttur, Ásdís Thoroddsen kvikmyndaframleiðandi og leikstjóri, sendiherra Þýskalands og sendiherra Japans.
Sendiherra Evrópusambandsins, Lucie Samcová-Hall Allen, tók á móti gestum og bauð þá velkomna fyrir sýningu á myndinni Anatomy of a Fall en hún er tilnefnd til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna sem haldin verða 9. desember í Berlín.
Þetta er í annað sinn sem Evrópski kvikmyndamánuðurinn er haldinn á Íslandi í Bíó Paradís, en í fyrra voru kvikmyndaverðlaunin haldin í Hörpu.