Vinir, börn og fjölskylda mættu til að fagna útgáfu bókarinnar Þriðja vaktin eftir hjónin Huldu Tölgyes sálfræðing og Þorstein V. Einarsson kynjafræðing. Teitið var haldið í Plöntunni og var margt um manninn.
Fullt var út úr dyrum og Eliza Reid lét sig ekki vanta sem og Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR og Þorgerður Einarsdóttir prófessor í kynjafræði.
Bókin fjallar um heimilishald og uppeldi sem er eitthvað sem felur í sér ólaunaða og vanmetna vinnu. Körlum hættir til að ofmeta sitt framlag og gera lítið úr álaginu sem fellur oftast á konur.
Í bókinni má meðal annars finna aðsendar reynslusögur og alþjóðlegar rannsóknir sem gefa lesendum færi á að sjá hvers vegna réttlát verkaskipting á heimilum er mikilvægt jafnréttismál.
Hjónin Hulda og Þorsteinn hafa verið leiðandi í umræðu um þriðju vaktina undanfarin ár og haldið fjölda fyrirlestra á vinnustöðum og námskeið fyrir pör.