Sjötta þáttaröð Venjulegs fólks í leikstjórn Fannars Sveinssonar var forsýnd í Sambíóunum í gærkvöldi fyrir fullu húsi. Stórleikarinn Hilmir Snær Guðnason var meðal þeirra sem mætti á en kærasta hans, leikkonan Vala Kristín Eiríksdóttir, fer með eitt af aðalhlutverkunum. Mikil stemning var á sýningunni enda eru þættirnir stórskemmtilegir og drepfyndnir.
Venjulegt fólk er langlífasta gamanþáttaröð í íslenskri sjónvarpssögu, þar sem engin íslensk gamanþáttaröð hefur verið sýnd jafn lengi í einni beit áður. Vala Kristín, Júlíana Sara og aðrir leikarar seríunnar birtust fyrst á skjánum árið 2018 og hafa fengið landsmenn til að springa út hlátri alla daga síðan, en spilanir eru að nálgast 3 milljónir.
Pattra Sriyanonge, Karen Björg Þorsteinsdóttir, Anna Þóra Björnsdóttir og Reynir Snær Magnússon.
Ljósmynd/Aðsend
Þórunn Erna Clausen, Arnmundur Ernst, Benedikt Erlingsson og Hilmir Snær Guðnason.
Ljósmynd/Aðsend
Hilmar Guðjónsson leikari og Anna Þóra Björnsdóttir.
Ljósmynd/Aðsend
Orri Hauksson forstjóri Símans hélt ræðu.
Ljósmynd/Aðsend
Karen Björg Þorsteinsdóttir, Vala Kristín Eiríksdóttir og Júlíana Sara Gunnarsdóttir kynna stoltar sjöttu seríu Venjulegs fólks.
Ljósmynd/Aðsend
Karen Björg Þorsteinsdóttir ásamt vinkonum.
Ljósmynd/Aðsend
Manúela Ósk Harðardóttir og Gréta Karen.
Ljósmynd/Aðsend
Pattra Sriyanonge og Sandra Björg Helgadóttir með góðum vinkonum.
Ljósmynd/Aðsend
Vala Kristín Eiríksdóttir, Þórunn Erna Clausen, Björk Guðmundsdóttir, Þórey Birgisdóttir, Viktoría Sigurðardóttir Stefaníudóttir og Unnur Elísabet Gunnarsdóttir.
Ljósmynd/Aðsend
Björk Guðmundsdóttir og Sverrir Þór Sverrisson.
Ljósmynd/Aðsend
Mikilvægt leikaraspjall!
Ljósmynd/Aðsend
Fullt var út úr dyrum.
Ljósmynd/Aðsend